Þjónustan

  • ELDHÚS

  • FYRIRTÆKI & STOFNANIR

  • FJÖLBÝLISHÚS

  • SKIPAÞJÓNUSTA

Komdu í veg fyrir eldhættu

Stefna okkar er að vera ávalt með bestu fáanlegu efni, tæki og búnað. Regluleg hreinsun stuðlar að kröftugra útsogi, minni eldhættu o.fl.

K-2 loftstokkahreinsun

K2 Loftstokkahreinsun sérhæfir sig í hreinsun og sótthreinsun loftræstikerfa og hefur yfir áratuga reynslu af hreinsun loftræstikerfa á íslandi.

Er kominn tími á viðhald?

Við eyðum um það bil 90% af tíma okkar innandyra og því hefur það loft sem við öndum að okkur mikil áhrif á heilsuna. Eðlilegt er að gera úttekt á loftræstikerfi og hreinsa það á 3-5 ára fresti.

K-2 Skipaþjónusta

Höfum á að skipa fagmenn sem hafa sérhæft sig í þeirri þjónustu sem við veitum, hvar á landinu sem er. Miklu máli skiptir að það sé gott eftirlit með loftræstingu skipa.

Myndir

Á MEÐAL VIÐSKIPTAVINA OKKAR ERU

Umsagnir viðskiptavina varðandi þjónustu okkar:

  • "Þetta eru fyrirmyndarpiltar sem unnu vel og fagmannlega. Við erum mjög ánægðir með þann góða tækjabúnað sem þeir hafa og þá þjónustu sem við fengum hjá K-2."

    Umsögn frá Rannsóknaskipinu Dröfn.
  • "Starfsmenn K-2 hreinsuðu loftræstikerfið í Skógarfossi í fyrra. Við erum mjög ánægðir með þjónustuna og finnum greinilega breytingu til batnaðar. Það er einfaldlega miklu betra loft um borð og mun meiri kraftur á kerfinu."

    Umsögn frá Hf. Eimskipafélagi Íslands
  • "Fólkið í blokkinni okkar er mjög ánægt og við finnum merkjanlegan mun á loftinu í íbúðunum. Þetta var greinilega mjög tímabært verk og starfsfólk K-2 vann það fljótt og örugglega."

    Umsögn frá húsfélaginu í Engihjalla 7, Kópavogi.
  • "Starfsmenn K-2 voru kurteisir, gengu hljóðlega um og unnu verk sitt mjög vel. Að verki loknu var allt skínandi hreint og vel frágengið."

    Umsögn frá St. Jósefsspítala í Hafnarfirði.
  • "Starfsfólk K-2 hreinsaði loftræstikerfið í Ísaksskóla og gerði það af lipurð og röggsemi. Greinileg fagmennska var höfð í fyrirrúmi og öll framkoma starfsfólks K-2 var til fyrirmyndar. Þá hefur starfsfólk Ísaksskóla haft á orði að andrúmsloftið sé greinilega betra. Öll samskipti við K-2 hafa verið mjög góð og við þökkum fyrir gott samstarf sem vonandi verður framhald á."

    Umsögn frá Ísaksskóla í Reykjavík.
  • Þetta er allt annað líf. Okkur líður miklu betur eftir að K-2 tók loftræstikerfið okkar í gegn. Við erum mjög ánægð með framgöngu starfsmanna K-2 og mælum með þessu fyrirtæki.

    Umsögn frá Kópavogsbæ.

Hafa Samband

Vinsamlegast sendið fyrirspurn á netfangið okkar hér að neðan

Eða hringið í síma 557 7000

Þjónustusími : 775 7770

    drakkarForsíðan